sælir kollegar. ég er að segja ykkur það að ég er búin að misnota sverrir bregmann svo mikið að það er öllum orðið illt! hann er bara í spilaranum allan sólahringinn hjá mér! en úr einu í annað að þá er maður bara fluttur í hafnafjörð og bý með Ollu frænku hérna í selvogsgötu 11 ef ég man rétt.. og svo er maður auðvitað búin að troða sér í vinnu hjá akureyringi auðvitað.. nenni nú ekki að fara að vinna hjá einhverjum kópavogsbúa eða einhvað! Viddi Vald. er klárlega maðurinn í þeim málunum! :D
var að lesa einhvað hryllilega, svaðalega, rosalega gamalt og sæææll hvað maður var gjörsamlega trylltur í kúpunni í þá daga. hér kemur eitt alveg frábærlega fáránlegt, hund skammaðist mín þegar ég las þessa hryllilegu sögu: sko .. einu sinni var ég.. ég var alfærðiorðabók!! jáá.. ég vissi allt, já þú last rétt..ALLT.. það er nú kannski ekki skríti því ég er alfræði orðabók, og þess vegna veit ég allt. einu sinni var ég í sundi og þá kom hann. hann sagði; hei.. ég.. halló. ég, ég er að kalla á þig og ég heyrði ekki neitt því ég var að kafa... en þá kom þú og hoppaðir ofan á ég. ég var alveg að kafna ofan í vatniu og beit þú í fótin til að þú færir ofan af ég. þegar ég var að verða máttlaus og að deyja fór þú af ég og þú og hann fóru að hlægja af ég. ég lá á bottninum. þá kom hún. hún kom hlaupandi eins hratt og hún gat og kítlaði ég. en ég vaknaði ekki til lífsins. þá tróð hún puttanum uppí rassin á ég... þegar hún gerði það komu fullt fullt af loftbólum.. þegar hún var uppiskroppa á aðferðum til að vekja ég til lífsins þá fór hún og varð alveg brjáluð við þú og hann. hún öskraði; ohh.. þið getið aldrei verið til friðs. þið ættuð bara að skammast ykkar, og nú fæ ég allar skammirnar því ég mátti ekki sofna því þá sofna ég aldrei í kvöld.. þú og hann urðu voða hræddir.þú varð svo hræddur að hann skreið inní eyrað á hann. hann boraði og boraði í nefið og fékk blóðnasir og náði þú með því. hann varð þá alveg bandbrjálaður við þú og sagði að það væri allt honum að kenna að hann þyrfti að fara að pissa núna. þú varð alveg dauðhræddur og fór og skallaði veginn og tróð vinstri hendinni á milli tánna á sér og hinni hendinu upp í rassinn sinn... loksins eftir 7 daga 23 klst. 14 mín og 43 sek. vaknaði ég. ég var alveg stálsleign og voða hress.. þegar ég vaknaði vara þú ennþá að skalla veginn og með hendurnar á milli tánna og uppi í rassinum á sér. ég sá hvergi hann því hann fór í rennibrautina að pissa. svo leitaði hann af hún. ég leitaði og leitaði. loksins fann ég hún og þá var hún bara að sprauta uppí nefið á sér með brunaslöngunni. ég fór til hún. hún var ekki glöð því ég var búin að vera sofandi allt of lengi og ég mátti ekki segja þeim það þegar ég kæmi heim. þegar hann var búin að pissa í rennibrautina renndi hann sér niður og kom til ég og hún. svo fórum við heim og skildum þú eftir því hann var ennþá að skalla vegginn og með hendurnar á milli tánna og uppi í rassinum. þegar ég kom heim fór hann og hún heim til sín líka. þegar ég kom inn á herbergið mitt var hún og hann þar að fela sig bak við ofninn sem var undir glugganum fastur við veggin.. ég fór og gáði hvað þau voru að gera þar... og þá sá ég að HANN VAR Á TÁNUM!! og ég bara fór að hágráta og stingdi hausnum inní millistykkið og fékk fullt af rafmagni og þaurfti að fara strax á hársnyrtistofuna og láta laga hárið á ég því það bara soðnaði allt. en svo þegar ég var á klóinu datt hann með hausin beint á klósett rúlluna og rotaðist. svo þegar ég vaknaði eftir rotið steig hann í pissið sem hafði farið útfyrir hjá ég og datt beint með hausin í loftljósið og svo datt fóturinn á ég af og skaust í klósettið og sturtaðist niður. svo stuttu seinna þegar ég var að þvo hendurnar því það kom pínu blóð í þær þá kom fóturinn upp úr vaskanum og sparkaði í hausinn á ég. eftir þetta mjög alvarlega spark þá sofnaði ég og vaknaði aldrei aftur... jáá mér finnst þetta svo sorgleg saga. pældíði hvað lífið er ósamgjarnt fyrir alfræði orðabækur. fjúkk að ég sé ekki alfræðiorða bók eða bara Ensk/íslensk íslensk/ensk orða bók sem er á dönsku. jáá lífið er ekki alltaf sanngjarnt og ég vona að þú lærir einhvað af því óþekka stelpa... en já fyrst að það er svona mikill jóla andi í söguni þá má ég ekki gleyma að segja: GLEÐILEG JÓL
hvað ætli hafi skeð hjá mér?
en jæja, þýðir nú ekki mikið að velt sé uppúr því. enda held ég að ég hefi ekki tíma til þess því ég þarf að fara að fá mér einhvað að borða því ég heyri ekki í sverri bergmann fyrir garnagauli! er bara búin að borða eina pylsu í dag! og svo er náttúrulega spurning hvort maður klári að henda myndunum frá því í sumar hérna inn! maske maður geri það!
en annars, heyrumst ;)
kv Sigríður Höskuldsdóttir
17. október 2008 klukkan 18:02
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 4 athugasemdir
Jæja kæru lesendur. Síðan er bara öll að skána hjá okkur sytrunum. Svona í tilefni af því að ég er föst á Neskaupstað og hef Ekkert að gera hérna þá ákvað ég aðeins að taka til á sætu síðunni okkar. Svo er ég einnig búin að setja inn fullt af myndum frá sumrinu, bara spurning hvort Bára Bing hafi einhvern tíma til að gera slíkt hið sama þar sem hún hefur flutt búslóð sína suður og er orðin rekstrastjóri í sjoppunni hans Braga í Reykjavík.
En annars svona það sem er að frétta af mér er voðalega lítið eins og venjulega. Byrjaði í gær að vinna í Olís og líkar það bara fínt, mæli samt ekki með því að þú komir og kaupir hjá mér ís haha... En svo er það skólin líka, hann er bara svona líka þræl fínn bara. Annars hef ég ekki verið að gera neitt annað en að hanga í tölvunni og horfa á DVD, held að augun detti bráðum úr mér!
Nenni ekkert að hafa þetta mikið lengra þar sem það er líka svo leim að blogga í dag ákvað bara að láta alla eða kannski báða lesendurna mína vita að ég er enn á lífi
Kveðja Sigga
Minni svo á nýju myndirnar
30. ágúst 2008 klukkan 23:34
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 4 athugasemdir
jámm... það er bara ekki til dauðleiki á þessari síðu sko... Báran getur bara sjálf verið dauð! en jáá en eins og flest ykkar vita þá ætlum við systurnar að leggja fót undir land og bara flytjast burt frá vorum foreldrum og systrum. ætlum að planta okkur á sitthvorum landshlutanum svo að landið þeim megin deyji ekki úr leiðindum, verðum bara að bíða eftir að ólöf lilja verði nógu gömul, þá sendum við hana á vestulandið og þá verður landið fullkomið og íslendingar verða aftur hamingjusamasta þjóð í heimi. Fullkomið plan hjá mér! en jáá.. Edda er að fara að flytja bara á morgun og er ekki hálfnuð og pakka draslinu sínu og er bara í bænum núna og er að vinna í nótt og ætlar svo að leggja af stað strax eftir næturvaktina, veit ekki alveg hvað hún ætlar að gera, hvort að hún skilji draslið sitt eftir eða seinki ferðini aðeins. gíska á þetta seinna sko. en jáá ég hinsvegar er að vera búin að pakka, er bara eila með eitt sett af fötum þanngað til á sunnudagin! gleymdi aðeins að hugsa útí það ! en jáá svo skunda ég bara á Neskaupstað á sunnudagin og það verður vonandi gaman bara. en er að spá í að láta þetta nægja í bili, hver veit nema að síðan verði í fantaformi eftir að við flytjum, smá líkur á því þar sem ég er að fara að flytja á einhvað krummaskuð! :D og svo fer maður nú að bæta inn nokkrum myndum í leiðinni vonandi.
en við, vorar systurnar kveðjum bara með stæl, hittumst heil
Sigríður nokkur Höskuldsdóttir
21. ágúst 2008 klukkan 15:44
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 3 athugasemdir
En ég meina maður veit aldrei. Get öruggleg skemmt Kollu í vinnuni þannig að það er eins gott að hún kommenti eitthvað fallegt.
Það sem er af okkur sysrum að frétta er nú ansi margt get ég sagt ykkur. Sigga vinnur eins og vitlaus kona í hrísó flesta dag. Þegar hún er ekki þar er hún heima að reyna að sauma eitthvað fallegt, hún er helvíti klár í því eins og bara öllu í höndunum. Svo liggur leið hennar á Norðfjörð núna í haust þar sem kellan ætlar að skella sér í klippinám ekki amarlegt það.
Svo er það ég. Ég á bíl sem er á númerum og ekkert bilaður. Ekki ekki eithvað eitt hann er bara alveg stálhraustur kagginn og gengur eins og klukka. Er þetta glæsilegur rauður Subaru. Svo eins og Sigga vinn ég bakibrotnu á 2 stöðum einsog oftast og er ég í Nætursöluni og einnig að vinna á sambýli sem er frábær vinna gefandi og skemmtileg. Svo eins og sigga er stefnan tekin útúr foreldrahúsum núna í haust og higgst ég fara í borgina stóru. Langar bara að prufa eitthvað nýtt. Er að fara að sjá þar um sjoppu sem Bragi sem á nætursöluna á. Verður gaman að prufa að vera yfir. Finnst vera komin tími á að fara eitthvað annað langar að fara eitthvert allt annað en að vera á þessu skítapleysi. Tel mig hafa mínar ástæður til að þola ekki þennan bæ þar sem mér finnst stjórn þessa bæjar vera að taka mína fjölskyldu svolítið fast í nefið og vil ég bara kýpla mig útúr þessu dæmi. Hvet alla til að gefa skít í D listan í þesum bæ og kjósa bara L listan lista fólksins. Höfum allavega fengið stuðning frá þeim í þessum málum. En ég ætla nú ekki að fara að snúa þessu upp í pólitík.
Vona að þetta blogg lifni nú aftur við svo hægt verði að fylgast með okkur systrunum og við fylgst með hvor annari. Spurning um að koma hinum bara líka hérna inn og hafa þetta systrablogg bara.
Ég er hérna á næturvakt á sambýlinu bara voða fínt hér allir sofadi og góðir. Þarf svo víst að bera út fréttablaðið fyrir systurnar þar sem fjölskyldan skellti sér bara í útilegu. Tek einn með mér af sambýlinu í það þá er ég svo miklu fljótari og honum finnst það líka fínt svo er það líka bara góð hreifing fyrir kallinn.
Ætla að fara að gera eitthvað sniðugt. Kveð að sinni
Edda Bára sem er alveg að verða fullorðin
29. júní 2008 klukkan 05:56
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 4 athugasemdir
Jæja meistarinn eigi að blogga tvisvar í röð... ekki slæmt sko! Ég fer bara að slá öll met sko þettaer bara ekki hemja lengur hvað ég er orðinn góður bloggari. en hvað sem því líður þá fór ég suður um helgina! Újeé, ég var sko fararstjórINN. Fór með KA stelpunum í handbolta, 4 og 5 flokk.Einsdæmi í sögu KA held ég því við vorum 4 systurnar í einni ferð! Toppaðu það J Við gistum í frostaskjólií KR setrinu, frábærtað vera þar.En á Lau. fórum við Stebbi rjómabolla með 5. Flokk í mosó og þær spiluðu þar tvo leiki. Eftir það var haldið uppí frostaskjól og náð í 4 flokk og brunað beint uppí kópavog því 4 flokkur var að fara að spila þar. Þar var mjöög mikið um hvatninu frá 5 flokk þannig að stebbi beisiklí heyrði ekki eigin hugsanir á hinum enda vallarins :D en jáá verð að segja að þær stóðu sig frábærlega í þeim leik. Eftir það var bara skjellt sér í smáralind og flestir fengu sér að éta og svona versluðu aðeins pínu pons.Svo var pöntuð pitsa um kvöldið eftir að sumir hefðu skellt sér í pottinn. Ágætis pitsa þó svo að systur mína og Arna og fleiri í 5 flokk lögðu sig fram við að tuða yfir henni eftir allt sem Stebbi lagði á sig til að fá pitsunar... hehe seinna sama kvöld löbbuðu nokkrir útí ísbúð og fengu sér ís, en ekki ég, fékk bara afganginn af stebba ís og laufeyjar. Svo var bara tjillað fram eftir kvöldi og spilað guitar hero sem ég keypti mér btw. Í smáralind. En svo drifum við þessar elskur í rúmið eða á dýnurnar öllu heldur og svo fórum ég Stebbi og Gunni að spila ólsenog ég tapaði alltaf, Stebbi og Gunni skiptust á að vinna! Aular. Svo vöknuðu allir svona líka eldhressir með blátt ljós í augunum sem sumir héldu þó að væri æpandi gult. En svo gengum við bara svona líka vel frá og allt útí rútu og svo bara að spila handbolta. Eftir alla leikina þá var bara brunað af stað heim. Var nú bara orðinn skít hrædd við þennan bílstjóra því hann vara bara dáldill glanni, en við lifðum þetta nú af. Svo þegar ég kom heim klúðarði ég þessu öllu sko. Við vorum á hraðferð á leið í afmæli þannig að ég bara lét mig hverfa og útaf því að ég var að flýta mér svona mikið þá gleymdi ég að taka pokan minn með stígvélunum mínum og jakkanum :o. Svo þegar ég var komin í sveitina í afmælið þá fattaði ég að ég gleymdi líka Cd diskum mínu í rútunni! En það var nú í lagi því þetta var bara skrifaður diskur sem ég gerði. En í afmælinu fengum við svona líka fínt að borða og fullt af ættingjum á staðnum og svo bara kom rósa frænka og bauð einhverjum 2 miða í freyvangsleikhúsið á þið munið hann jörund. Og það gat bara enginn farið svo að ég „neyddist“til að fara og bauð Beggu vinkonu memm. Það var bara fínt á þessu leikriti og fyndið sko þó svo að ég hafi ekki skilið baun í sögunni!! En svo þegar ég kom heim þá fattaði ég að begga var með bíllyklana mína og ég bara sjitt sko.. þurfti að nota bílinn minn auðvitað í fyrramálið! Svo að begga æðibiti kom með lyklana til mín bara einhvað um hálf 12 leitið og svo eftir það þegar ég var að hátta mig á leiðinni uppí rúm fattaði ég að Begga vara líka með 5000 kr. Mínar og bíllinn minn var svo bensínlaus að ég rétt svo komst í vinnuna og til baka... þurfti meira að segja að taka bensín á heimleiðinni... þannig að laugardagurinn var mér stór hættulegur, gleymdi næstum því sjálfri mér, og svo í þokkabót þá var ég alltaf að slasa mig. Fékk meira að segja feita vör því að ég skallaði Stebba en ég held að hann hafi ekki einu sinni tekið eftir því. En jæja. Ég nenni eila ekki að hafa þetta mikið lengra því mér er orðið illt í puttunum og ég efast um að nokkur manneskja eigi nokkurn tíman eftir að lesa þetta.. Er bara í leiðinlegum tíma, vefjaefnafræði eða einhvað og er að læra um silki! Booring Ef þið vilduð sko vita það að þá er silki úr eggjahvítuefni eins og ull og hefur því mjög svipaða eiginleika. Silki er örfínn þráður sem lirfa mórberjafiðrildisins spinnur utan um sig við púpuna eða einhvað þannig!! Merkilegt nokk.. þetta er ég að læra í skólanum krakkar mínir.Þannig að
ég kveð að sinni krakkar mínir og við hittumst heil ;)
Sigga Selur
26. febrúar 2008 klukkan 15:00
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 4 athugasemdir
jááá hér og nú kemur blogg aldarinnar.. jéræt... sko það erekkert merkilegt búið að gerast í mínu litríka lífi frekar en hinn daginn nema náttúrulega rjómabolludagurinn sívinsæli.... bara vinna og vinna og einhvað að þykjast vera í skóla... svo kemur bráðum að afmælinu mínu... ekki nema 104 dagar það.. svo er kjellin náttúrulega búinn að fá nýjann bíl.. samt alveg eins og gamli bara hvítur.. svo er náttúrulega saltkjöt og baunir túkall dagurinn á morgun og hinn er öskudagurinn.. úúú ég ætla klárlega að vera hross þá.. þá skjellir maður sér líka loksisn í lit og klipp, kominn tími til, er komin með svona líka myndarlegann músaskítslitaðann lubba :D geggjaður svo er snjórinn líka gott umræðuefni held ég.. ég bara tótalí elska hann.. bara ást við fyrstu sín held ég!! svo fer að nálgast í árlegu sleðaferð kiwanis þar sem liðið fer á illugastaði og kaldbak yfir eina helgi.. magnað enjæja... farinn í frisbí eða einhvað þar sem ég er nú heimsmeistari í frisbí ;);)
bið að heilsa venner min
Sigríður Rjómbolla
04. febrúar 2008 klukkan 20:31
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 8 athugasemdir
Já var að reyna að henda eitthverjum myndum inn en þetta drasl bara virkar ekki. ætli ég noti þá ekki bara myspacið frekar.
Annars vil ég bara óska ykkur öllum gleðilegs nýs árs og þakka fyrir það gamla.
Og í dag er svo annar dagur ársins og eins og síðustu 23 árin held ég áfram að eldast Þannig að ég óska bara sjálfri mér innilega til hamingju með daginn
02. janúar 2008 klukkan 10:01
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 6 athugasemdir
Já nú er ég að vinna í því að henda nokkrum myndum hingað inn. Allveg misgáfulegum og einni svaðalegri af Láru og Beggu haha. Og Sigrún mín ég passaði mig á að snúa öllum myndunum rétt allavega af þeim gömlu svo þú gætir nú virt þau almminnilega fyrir þér fyrst þú nennir ekki bara að snúa tölvuskjánum við
Annars er ég bara að gera ritgerð í íslensku núna sem ég á að skila á morgun og gildir ekki nema 20% úff úff... Ætla bara að láta þetta gott heita í bili og vona að þið eigið eftir að geta notið myndana.
Báran með rjúkandi úr eyrunum kveður
07. október 2007 klukkan 21:52
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 5 athugasemdir
Já þessi síða er víst orðin ansi lúin greyjið. En gaman samt að lesa í gestabókini allar kvejurnar frá frændfólki. Og ég er nú ekki það breytt Nabba mín, mér finnst ég alltaf eins kannski bara stærri á þvereginn
En já þessa stundina er ég í sveit sem er sona 20 mín frá kópaskeri þar sem forledrar Beggu búa og komum við hingað til að fara í réttir og annað með. Byrjaði á því að við lögðum að stað frá ak rétt eftir hádegi á föstudegi og þegar hingað var komið hlupum við inn fórum á wc fórum í hlí föt og svo var keyrt upp í gangnakofa. sú ferð var nú reyndar spes en að sjálfsögðu skemmtileg. keyrðum yfir urð og grjót og önnur eins fínheit og miklar hossur. þessi ferð tók um tvær klukkustundir og síðan var það kofinn þar sem hituð var upp kjötsúpa handa gangnamönnunum og mmm... hvað hún var góð. svo leið að heimferð þar sem ég gerði alla í bílnum frekar hneikslaða og svaf allla leiðina til baka í öllum hossunum og látunum og ég bara steinsvaf allan tíman og kippti mér ekkert upp við það ef ég skellihausnum í, þá koma bara stór hrota hehe. svo sagði lára að um leið og við kæmumst upp á vegin aftur þá myndi ég vakna. Viti menn það var víst raunin, voru bara rétt komin á veginn þegar ég ranka við mér og spyr hvort við séum komin, og gellurnar í bílnum sprungu úr hlátri. ég gat allavega gert ferðina fyrir þær skemmtilegri. á laugardeginum héngum við inni í tölvuni í smá tíma skelltum svo læri í ofnin og brunuðum til kópaskers þar sem ég ákvað að fá mér bara bjór fyrst hann var nú hliðina á mér og ég ekkert að keyra og var ég orðin pínu hífuð um hálf sex og hætti ég þá þar sem ég átti að vera driver um kvöldið. svo var brunað aftur í Reystarnes(þar sem foreldrar Beggu búa) og fengið sér læri og mmmm... hvað það var nú geggjað gott. síðan fórum við nú að búa okkur í kaupstaðaferð þar sem við ætluðum að tjékka á eitthverjum partyum byrjuðum á einu sem endaði ekki betur en það að húsráðandi eigðilagði myndavélina hennar Láru þannig að við fórum þaðan og í annað party þar sem var hellingur af útlendingum sem eru að vinna í sláturtíðinni sem er nú hafin og dísus þessir útlendingar sko piiffff bara. en þetta party endaði nú heldur ekki vel þar sem myndavélinni hennar Beggu var stolið og Begga leitaði á öllum í partyinu og keyrði heim til nokkra sem voru farnir en ekkert fannst og er hún ekki fundin enn Núna í morgun voru svo réttir í þessu líka geggjaða veðri það er sko brjálað rok og ágætis rigning og var orðið pínu kalt þegar var farið að síga á seinni hlutan og gott var að komast inn í hlíjuna.
Já ég er nú kominn með 2 vinnur. Er að vinna á miðlun sem er ekkert svo ósvipað og gallup en mér finnst starfsandinn betri þar og svo er ég að vinna í nætursöluni. Finnst samt pínu skrítið að vera hætt á úa for good. frekar skrítin tilfinning en samt svo góð þegar maður er að heyra sögurnar af ruglinu sem er alltaf í gangi þar.
En er að spá i að láta þetta gott heita
Báran kveður að sinni með kul á rassnum
23. september 2007 klukkan 16:24
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 1 athugasemd
jæja já.. nú er ég bara stödd í þyngás 6, 110 Reykjavík ! og búin að vera í reykjavík síðaarn laugardaginn 14 júlí sem þíðir að ég er búin að vera hérna í meira en 2 vikur sem er bara ágætt svona...
nenni ekkert að vera að blogga neitt voðalega mikið þannig að ég segi bara frá ferðum mínum í grófum drætti !!
byrjaði á því að keyra frá Ak. og uppí munaðarnes, og skildi bílinn minn eftir þar og fór til reykjavíkur með ömmu og Kidda !
svo fórum við til Ollu, en útaf því að hún var með kossageit, sem er mjög smitandi veira einhver fór ég bara uppí Laugardal til mömmu og pabba.
þá voru Aldís og Laufey að keppa á símamótinu og ég var bara að horfa á stelpurnar keppa og fór með C liðinu í sund og kvöldmat. svo fórum við á kvöldvökuna og þar spilaði júróbandið og þar var bara ágætis stemmari. svo um morgunin fór ég bara í morgun mat með A liðinu því pabbi var fararstjóri í því. svo var bara haldið útá völl að horfa á meiri fótbolt og svo var mótinu bara slitið með pomp og prakt og við fengum pylsur og kók í dós að vanda. svo fórum við bara uppí salaskóla og gengum frá dótinu og öllu.
því næst var ég keyrð til Ollu og Jonna.
við erum búnar að rúnta nokkrum sinnum uppí munaðarnes í bústaðinn hjá ömmu og kidda og ég fór með bílinn minn til Rvk.
svo erum við búin að fara nokkuð oft í ikea og fá okkur pylsu og gos og ís, og auðvitað versla slatta.
ég er einnig búin að fara með Ollu minni nokkrum sinnum að vinna í listaselinu sem er í skólavörðustígnum, þannig að ég fór bara á laugarvegin að versla og svo var maður jú einhvað að afgreiða líka.
búin að fara í elko líka og keypti slatta þar auðvitað.
svo skruppum við Olla til hveragerðis með Eyjólf, og heimsóttum Möggu og svo ætluðum við að heimsækja Árna, Snorra go fjölskyldu en það var bara enginn heima nema mamman sem var að hlaupa á hlaupabrettinu sínu þegar við komum!!
svo erum við auðvitað búin að fara nokkrum sinnum að rúnta með Eyjólf kallinn.
svo fórum við aðeins í intersport að versla pínu.
ég fór svo í smáralind, eða í hagkaup og verlsaði þar líka aðeins og það er eina búðin sem ég fór í í smáralind og ég er ekkert búin að fara í kringluna!!
svo auðvitað bjó ég til bleikt svín úr gleri, en það halda samt allir að þetta sé bleikur köttur, en svínið heitir nú auðvitað Jóhannes, enn ekki hvað.
ég Oll og stína fórum í gær uppí munaðarnes og tókum upp kvikmynd um álverur og huldufólk, geðveik mynd sko.
eftir kvikmyndatökuna fórum við uppí bústað til ömmu og kidda og þar var nóg af fólk eins og veinjulega. þar voru Helga og Geiri, Sigrún og Birna og Gunnar minnir mig að hann heiti.
svo á leiðinni aftur til reykjavíkur stoppuðum við í borganesi hjá Helgu og Geir og sigrún, birna og gunnar voru þar. en Helga og sigrún voru að fara að selja dótið sitt á einhverjum markaði og við fórum að skoða það, geðveikt flott það sem þær voru að gera. Helga er að gera svona hekluð og prjónuð og líka saumuð dúkkuföt og Sigrún er að gera töskur úr gallabuxum. Olla keypti sér eina tösku hjá Sigrún og gaf mér eina líka :D ánægð með mína.
ég fór svo ég til hveragerðis með Hemma og Jónsa og hitti þar Matta og Alla og svo ákváðum við að koma við hjá möggu en hún var bara ekki heima :( þannig að við fórum bara að hitta hann snorra frænda minn og árna og jóhönnu. hann Snorri er einmitt að fara að keppa á motocross mótinu heima á ak á lau. og svo á egilstöðum á sun. þannig að gangi þér bara frábærlega vel. hver veit nema að maður kíki þarna uppeftir og horfi aðeins á þetta.
svo erum við búnar að gera svo margt fleira t.d. fara í heita pottinn hennar ollu, skrúbbuðum allt húsið hennar Ollu, fórum í hafnarfjörð að heimsækja ömmu og Kidda og margt margt skemmtilegt.
svo er ég búin að eyða allt of miklu eins og venjulega!! er búin að kaupa mér:
2 gallabuxur, einar alveg síðar og hinar svona kvert buxur skó sokka 2 náttbuxur næbuxur 2 sængurver lak pakka handa mömmu pakka handa öllum systrinum mínum, einn á mann sko 2 Dvd myndir pakka, sem að við eigum allar systurnar að fá saman 2 spangir 2 belti 2 töskur brjósthaldara peningaveski
og kannski er ég að gleyma einhverju, aldrei að vita
svo er ég bara að spá í að keyra heim á morgun eða miðvikudaginn því að ég er að fara að vinna á f0studaginn.
en jæja ég ætla að fara að fá mér pítu núna með Ollu.
Við hittumst heil ;)
Kveðja Sigga penningamaskína !
30. júlí 2007 klukkan 13:01
Sigríður Höskuldsdóttir og Edda Bára 1 athugasemd